To see the other types of publications on this topic, follow the link: Sjálfsmynd.

Journal articles on the topic 'Sjálfsmynd'

Create a spot-on reference in APA, MLA, Chicago, Harvard, and other styles

Select a source type:

Consult the top 25 journal articles for your research on the topic 'Sjálfsmynd.'

Next to every source in the list of references, there is an 'Add to bibliography' button. Press on it, and we will generate automatically the bibliographic reference to the chosen work in the citation style you need: APA, MLA, Harvard, Chicago, Vancouver, etc.

You can also download the full text of the academic publication as pdf and read online its abstract whenever available in the metadata.

Browse journal articles on a wide variety of disciplines and organise your bibliography correctly.

1

Kjartansdóttir, Katla, and Kristinn Schram. "„Fólk í feldklæðum“. Lundar og hvítabirnir á mannöld." Ritið 20, no. 1 (2020): 49–77. http://dx.doi.org/10.33112/ritid.20.1.3.

Full text
Abstract:
Ólíkar birtingarmyndir tveggja dýrategunda, hvítabjarna og lunda, eru hér til umfjöllunar í samhengi efnismenningar og frásagna fortíðar og samtíma. Rætt er um með hvaða hætti hlutverk þeirra hefur fléttast saman við sjálfsmyndir og mismunandi menningarlegt samhengi. Spurt er hvernig merking þessara dýra hefur frá fornu fari tekið breytingum og þróast. Þar má nefna ýmsa merkingarauka í tengslum við loftslagsbreytingar, aukna umhverfisvitund og vaxandi áherslur á norðurslóðir sem birtast í myndrænni og efnislegri framsetningu, til dæmis í íslenskri ferðaþjónustu, á söfnum og í myndlist. Bakgrun
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
2

Knútsdóttir, Vera. "Sjálfsmynd og ókennileiki á tímum fjármálahruns: Um hrunskáldsögurnar Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur og Hvítfeld: Fjölskyldusaga eftir Kristínu Eiríksdóttur." Ritið 23, no. 1 (2023): 7–36. http://dx.doi.org/10.33112/ritid.23.1.1.

Full text
Abstract:
Markmið greinarinnar er að fjalla um skáldsögur tveggja íslenskra kvenrithöfunda sem beita fagurfræði hins ókennilega (e. the uncanny, þ. das unheimliche) til að takast á við atburði fjármálahrunsins árið 2008. Sögurnar sem um ræðir eru Ég man þig (2010) eftir Yrsu Sigurðardóttur, og Hvítfeld: Fjölskyldusaga (2012) eftir Kristínu Eiríksdóttur. Í hug- og félagsvísindum er hrunið skilgreint sem sameiginlegt áfall þjóðar sem leiddi til djúpstæðrar minnis- og sjálfsmyndarkrísu á hinu sameiginlega opinbera sviði. Þá hefur hugmyndin um hrunbókmenntir verið glögglega skilgreind og rædd, til dæmis í b
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
3

Steinþórsdóttir, Guðrún, and Bergljót Soffía Kristjánsdóttir. "Lundaleppar, norðurljósasokkabuxur og hrossatað: Vangaveltur um minjagripi, ferðamennsku og sjálfsmyndir þjóðar." Ritið 19, no. 3 (2019): 199–227. http://dx.doi.org/10.33112/ritid.19.3.9.

Full text
Abstract:
Síðasta áratug hefur hlaupið mikill vöxtur í varning ætlaðan ferðamönnum á Íslandi. Landið hefur notið sífellt meiri hylli ferðamanna sem flykkst hafa hingað í stórum stíl. Í greininni er fjallað um íslenska minjagripi en stiklað verður á nokkrum vörum sem framleiddar eru og seldar ferðamönnum sem minning um Íslandsveruna og skoðað sérstaklega hvaða sjálfsmyndir gripirnir draga upp af Íslendingum og Íslandi. Gróflega má skipta íslenskum minjagripum í tvo flokka, annars vegar þá sem vitna um íslenska þjóðernishefð og vinna með náttúruna og ýmis minni úr sagnaarfinum; hins vegar þá sem gera grín
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
4

Valdimarsdóttir, Soffía, Sif Einarsdóttir, and Hrafnhildur V. Kjartansdóttir. "„Maður er bara sinn eigin skapari“: Staðbundin starfstengd sjálfsmynd íslenskra ungmenna í hnattvæddum heimi." Tímarit um uppeldi og menntun 27, no. 1 (2018). http://dx.doi.org/10.24270/2018.27.5.

Full text
Abstract:
Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun íslenskra ungmenna af mótun eigin náms- og starfsferils í hnattvæddum heimi í því skyni að öðlast innsýn í starfstengda sjálfsmynd þeirra. Frásagnarnálgun McAdams (2015) var beitt þegar tekin voru viðtöl við sex 22 ára ungmenni. Niðurstöður sýna að marg- og síbreytileiki vinnumarkaðar, minna starfsöryggi og hverfult efnahagsástand veldur þátttakendum óvissu og óöryggi sem flækir starfsferilsþróun þeirra. Heimssýn þeirra er hnattræn en staðbundin menning er þó ríkjandi í starfstengdri sjálfssögu þeirra. Sagan byggist á hefðbundnum gildum fjölskyldu
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
5

Valdimarsdóttir, Soffía, Sif Einarsdóttir, and Hrafnhildur V. Kjartansdóttir. "„Maður er bara sinn eigin skapari“: Staðbundin starfstengd sjálfsmynd íslenskra ungmenna í hnattvæddum heimi." Tímarit um uppeldi og menntun 27, no. 1 (2018). http://dx.doi.org/10.24270/tuuom.2018.27.5.

Full text
Abstract:
Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun íslenskra ungmenna af mótun eigin náms- og starfsferils í hnattvæddum heimi í því skyni að öðlast innsýn í starfstengda sjálfsmynd þeirra. Frásagnarnálgun McAdams (2015) var beitt þegar tekin voru viðtöl við sex 22 ára ungmenni. Niðurstöður sýna að marg- og síbreytileiki vinnumarkaðar, minna starfsöryggi og hverfult efnahagsástand veldur þátttakendum óvissu og óöryggi sem flækir starfsferilsþróun þeirra. Heimssýn þeirra er hnattræn en staðbundin menning er þó ríkjandi í starfstengdri sjálfssögu þeirra. Sagan byggist á hefðbundnum gildum fjölskyldu
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
6

Pálsdóttir, Kolbrún Þ., Kolbeinn Hólmar Stefánsson, and Hermína Gunnþórsdóttir. "Að tilheyra í skólanum: Áhrifaþættir á upplifun grunnskólanema." Netla, February 8, 2022. http://dx.doi.org/10.24270/serritnetla.2021.10.

Full text
Abstract:
Stór áhrifaþáttur á farsæld nemenda er að þeir upplifi og finni að þeir tilheyri skólasamfélaginu og að þeim sé tekið eins og þeir eru af nemendum og kennurum. Markmið þessarar greinar er að varpa ljósi á hvernig félagslegir þættir líkt og kyn nemenda, fjárhagsstaða og erlendur uppruni móta upplifun þeirra af að tilheyra eða tilheyra ekki í skólasamfélaginu. Einnig að kanna hvort áhættuhegðun, samskipti við foreldra og sjálfsmynd hafi áhrif á hvernig félagslegir þættir móta upplifun af að tilheyra. Byggt er á gögnum úr rannsókninni Heilsa og lífskjör skólabarna (HBSC). Rafræn spurningakönnun v
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
7

Loftsdóttir, Kristín. "„Fimmtán prósent þjóðarinnar": Frá Íslandi til Kanaríeyja." Ritið 24, no. 1 (2024). http://dx.doi.org/10.33112/ritid.24.1.9.

Full text
Abstract:
Kanaríeyjar hafa sögulega séð verið áfangastaður fjöldaferðamennsku, sem hefur mótað eyjarnar verulega. Þessi grein spyr af hverju fólk frá Íslandi ferðast til Kanaríeyja og hvernig það lítur á sig í því þverþjóðlega samfélagi sem fyrirfinnst á Kanaríeyjum. Að hvaða leyti skiptir íslenskt þjóðerni máli fyrir þá sem þangað sækja og við hverja samsamar fólk frá Íslandi sig? Greinin byggir á viðtölum sem tekin voru á Íslandi og á Kanaríeyjum við fólk sem hefur búsetu á Gran Canaria og Tenerife, sem og við fólk sem ferðast til eyjanna frá Íslandi til að dveljast í styttri tíma. Sýnt er fram á að l
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
8

Rafnsdóttir, Guðbjörg Linda. "Kolbrún S. Ingólfsdóttir: Merkiskonur sögunnar." Veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla 5, no. 2 (2009). http://dx.doi.org/10.13177/irpa.c.2009.5.2.8.

Full text
Abstract:
Í umsögn gagnrýnanda kemur meðal annars eftirfarandi fram: Þrátt fyrir einhverja annmarka og þá skoðun mína að vinna hefði mátt handritið betur er útkoma bókarinnar gleðiefni, ekki síst fyrir yngri kynslóðir kvenna sem brýnt er að sæki sjálfsmynd sína í sterkar konur. Er það von mín og trú að sú forvitni sem bókin kann að vekja muni hvetja til frekari rannsókna á sögunni sem varpað gætu enn skýrara ljósi á lífshlaup merkiskvennanna en hér er gert.
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
9

Jónsdóttir, Jóna Guðrún, and Rannveig Björk Þorkelsdóttir. "Tíminn sem ég man eftir: Ávinningur nemenda af þátttöku í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar." Netla, December 31, 2020. http://dx.doi.org/10.24270/netla.2020.11.

Full text
Abstract:
Markmið rannsóknarinnar sem þessi grein byggir á var að stuðla að aukinni þekkingu á listkennslu og skoða hvaða áhrif þátttaka í verkefni eins og Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar, hefur á líðan og sjálfsmynd ungmenna. Jafnframt var markmiðið að skoða áhrif Skrekks á skólabrag og skólamenningu. Rannsóknin byggir á eigindlegri rannsóknaraðferð. Tekin voru sextán viðtöl, átta við rýnihópa nemenda á unglingastigi og átta viðtöl við kennara og skólastjórnendur, úr fimm skólum. Einnig var fylgst með nemendum á úrslitakvöldi Skrekks í Borgarleikhúsinu. Niðurstöður rannsóknar leidd
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
10

Valsdóttir, Kristín. "Ígrundaðir starfshættir í kennaranámi listamanna." Netla, February 5, 2021. http://dx.doi.org/10.24270/serritnetla.2020.11.

Full text
Abstract:
Viðfangsefni þessarar greinar er að varpa ljósi á þátt markvissrar ígrundunar í listkennaranámi og hugsanleg áhrif hennar á þróun sjálfsmyndar listamanna sem listkennara. Rannsóknin er byggð á doktorsrannsókn minni sem fjallaði um nám og námsferil listamanna sem bæta við sig kennaranámi. Markmið þeirrar rannsóknar var að varpa ljósi á þær áskoranir sem mæta listkennaranemum á nýjum vettvangi – vettvangi menntunarfræða. Niðurstöður hennar gefa til kynna að ólíkar aðferðir til ígrundunar, ásamt þeirri áherslu í náminu að horfa til fyrri þekkingar og reynslu, hjálpi nemendum að setja nýja þekking
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
11

Magnúsdóttir, Ásdís Rósa. "Sjálfsmynd, framandleiki og tungumál í verkum Matéos Maximoff: rómíska í íslenskum þýðingum." Milli mála 11 (2019). http://dx.doi.org/10.33112/millimala.11.5.

Full text
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
12

Benediktsdóttir, Ásta Kristín. "Að þekkja sinn vitjunartíma. Elías Mar, tvíkynhneigðin og fyrstu skáldsögurnar." Syndin 20, no. 3 (2020). http://dx.doi.org/10.33112/ritid.20.3.11.

Full text
Abstract:
Handritasafn rithöfundarins Elíasar Mar (1924–2007) veitir einstaka innsýn í hugarheim ungs tvíkynhneigðs rithöfundar um miðja 20. öld. Þar er meðal annars að finna minnisbækur og handrit sem varpa ljósi á þróun sjálfsmyndar Elíasar og skáldverka hans fram undir þrítugt. Í þessari grein er byggt á skjölunum og fjallað um „vitjunartíma“ Elíasar á síðari hluta fimmta áratugarins, þegar hann horfist í augu við að kynferðislegar langanir hans beinast að báðum kynjum og vinnur um leið einbeittur að því að skapa sér feril sem rithöfundur. Markmiðið með greininni er að marka Elíasi og skrifum hans st
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
13

Arguedas, José María. "Sósíalismi og bókmenntaform í Perú." Ritið 24, no. 2 (2024). http://dx.doi.org/10.33112/ritid.24.2.3.

Full text
Abstract:
Greinin kannar hvernig félagslegt raunsæi hafði áhrif á skáldskap perúska 20. aldar rithöfundarins José María Arguedas. Gegn þeim móderníska lestri sem sér verk Arguedas sem heimóttarlega eftirlíkingu af raunveruleikanum setur þessi ritgerð verk hans í samhengi við alþjóðlega strauma sem „rauð“ bókmenntakerfi settu af stað. Gegn þeirri túlkun sem leggur áherslu á menningarlega sjálfsmynd og mismun í verkum Arguedas, sérstaklega þegar kemur að menningu frumbyggja Andesfjallanna, kannar greinin raunsæisverk Arguedas sem leið til að skilja útþenslu kapítalisma og heimsvaldastefnu í Perú. Með áher
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
14

Ómarsdóttir, Silja Bára. "Sigrún Pálsdóttir: Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar." Veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla 6, no. 2 (2010). http://dx.doi.org/10.13177/irpa.c.2010.6.2.12.

Full text
Abstract:
Í umsögn gagnrýnanda kemur meðal annars eftirfarandi fram: Það er óhætt að mæla með bókinni um Þóru biskups. Frásögnin er lifandi og persónurnar heillandi. Bók Sigrúnar Pálsdóttur um Þóru er skemmtileg aflestrar og fróðleg. Hún veitir innsýn í líf embættismannastéttarinnar á Íslandi á síðari hluta 19. aldar og varpar góðu ljósi á þá óljósu stöðu sem konur af þessari stétt höfðu að svo mörgu leyti. Sjálfsmynd Íslendinga er ekki til umfjöllunar, en þó sýnir saga Þóru hvernig Íslendingar litu á sig, töldu sig þrátt fyrir fámennið hafa í fullu roði við sér stærri þjóðir og eiga erindi á alþjóðavet
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
15

Ævarsdóttir, Þórdís Lilja, and Ingibjörg V. Kaldalóns. "Kulnun grunnskólakennara." Netla, October 25, 2023. http://dx.doi.org/10.24270/netla.2023/13.

Full text
Abstract:
Markmiðið með rannsókninni var að öðlast skilning á upplifun og reynslu grunnskólakennara af kulnun og þeim áhrifum sem starfsumhverfi hefur á kulnun grunnskólakennaranna að þeirra eigin mati. Stuðningur úr starfsumhverfinu var skoðaður í ljósi sjálfsákvörðunarkenninga Ryan og Deci (2017) um hvernig unnt sé að mæta sálrænum grunnþörfum þeirra fyrir sjálfræði, hæfni og félagstengsl. Einnig var sjónum beint að hvort og þá hvaða persónulega lærdóm, svokallaðan áfallaþroska, kennarar draga af þeirri reynslu að hafa lent í kulnun. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem upplifa áfallaþroska finna fyrir br
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
16

Ingvarsson, Haukur. "„Fyrir þá, sem vilja kynna sér jafnaðarstefnuna er bók þessi góð byrjun ...“: Íslandssaga The Jungle eftir Upton Sinclair í fjórum þáttum." Ritið 24, no. 2 (2024). http://dx.doi.org/10.33112/ritid.24.2.8.

Full text
Abstract:
Árið 1905 tók skáldsaga bandaríska rithöfundarins Uptons Sinclairs The Jungle að birtast sem framhaldssaga á síðum sósíalíska vikublaðsins Appeal to Reason. Sagan varpaði ljósi á illan aðbúnað verkafólks og vafasama starfshætti í sláturhúsum Chicago-borgar þar sem meirihlutinn af niðursoðnu kjöti í Bandaríkjunum var framleiddur. Sagan vakti þjóðarathygli og brátt heimsathygli því hún var þýdd á fjölda tungumála á næstu misserum. Árið 1914 kom hún út á Íslandi í þýðingu barnakennarans Páls Bjarnasonar á vegum fjelags eins á Stokkseyri. Í greininni er horft á fjögur spor sem marka inngöngu Sincl
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
17

Sigurðardóttir, Anna Kristín, Gerður G. Óskarsdóttir, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, Ingunn Gísladóttir, and Steinunn Stefánsdóttir. "Menntaumbætur og afdrif þeirra : Fyrstu tíu ár heildstæðrar þjónustu og reksturs grunnskóla hjá Reykjavíkurborg 1996–2005." Netla, February 18, 2022. http://dx.doi.org/10.24270/serritnetla.2022.70.

Full text
Abstract:
Stefnumörkun og umbótaverkefni á vegum opinberra aðila til að efla og bæta skólastarf eru hluti af þróun skóla og skólakerfa um allan heim. Ítarlegar samtímalýsingar á innleiðingu slíkra verkefna liggja aftur á móti ekki alltaf á lausu og lítið er um greiningar eða mat á afdrifum þeirra eða áhrifum.Í þessu riti er sjónum beint að menntaumbótum hjá Reykjavíkurborg og afdrifum þeirra í kjölfar tímamóta í sögu grunnskóla hér á landi þegar þjónusta við þá og rekstur fluttist frá ríki til sveitarfélaga samkvæmt grunnskólalögum frá árinu 1995. Markmiðið er að a) draga upp mynd af umbótamiðuðum aðger
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
18

Magnúsdóttir, Berglind Rós, and Sonja Kosunen. "Útvalin og úrvals." Netla, May 14, 2024. http://dx.doi.org/10.24270/serritnetla.2024.1.

Full text
Abstract:
Vegferð ungs fólks til fullorðinsára í gegnum framhalds- og háskólakerfið er ferli sem mótar sjálfsmynd þeirra, möguleika og stöðu meðal jafningja. Markmið rannsóknarinnar er að greina stofnanahátt aðgangsstífra bóknámsskóla á Íslandi og í Finnlandi út frá bakgrunni og reynslu nemenda og skoða vegferð þeirra milli framhalds- og háskólastigsins. Nemendurnir hafa verið valdir úr stórum hópi ungmenna til að verða „úrvals“ eða „framúrskarandi“ fólk. Fræðileg nálgun er byggð á hugtökum Bourdieu þar sem rýnt er í upplifun nemendanna af ferlinu við að velja og vera valin inn í skólann, hvernig þau ha
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
19

Hreiðarsdóttir, Anna Elísa, and Svava Björg Mörk. "Samkennsla tveggja námskeiða í staðlotu í leikskólafræðum." Netla, December 31, 2023. http://dx.doi.org/10.24270/serritnetla.2023.19.

Full text
Abstract:
Í greininni er fjallað um þróunarverkefni í háskólanámi þar sem fléttað var saman kennslu í tveimur námskeiðum í staðlotu. Námskeiðin tvö fjalla um kenningar um leik í leikskólakennslu og sköpun í leikskólastarfi og áherslan var á heilbrigði og velferð í öllum þáttum verkefna. Kennsluaðferðin sem beitt var í lotunni er leitar- og spurningamiðuð (e. inquiry-based learning, IBL), byggð á aðferð Susan Stacey (2019) og er sérsniðin að börnum að leikskólaaldri. Áhersla var lögð á markvissa ígrundun nema í gegnum vinnuna við verkefnin, fyrst í gegnum vinnu með sjálfsmynd og tilfinningar en síðar með
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
20

Pálmadóttir, Hrönn. "„Mér líður eins og ég tilheyri, veit að hún lærir tungumálið fljótt.“ Foreldrar með fjölbreyttan bakgrunn og fullgildi við upphaf leikskólagöngu." Netla, August 16, 2022. http://dx.doi.org/10.24270/netla.2022.9.

Full text
Abstract:
Greinin er byggð á rannsókn þar sem leitast var við að skilja hvaða merkingu foreldrar með fjölbreyttan bakgrunn leggja í reynslu sína af samskiptum og þátttöku við upphaf leikskólagöngu barna sinna. Í rannsókninni er stuðst við hugtakið fullgildi sem er þýðing á enska hugtakinu belonging. Það vísar til tilfinningar einstaklingsins af félagslegum tengslum ásamt tækifærum til samskipta og þátttöku. Hugtakið fullgildi er margslungið og greinir Yuval-Davis (2006, 2011) á milli tilfinningalegs fullgildis (e. sense of belonging) og pólitísks fullgildis (e. politics of belonging). Fullgildi er talið
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
21

Magnúsdóttir, Berglind Rós, and Unnur Edda Garðarsdóttir. "„Bara ekki mínar týpur!“ Sjálfsmyndarsköpun, félagsleg aðgreining og framhaldsskólaval." Netla, February 3, 2020. http://dx.doi.org/10.24270/serritnetla.2019.13.

Full text
Abstract:
Á síðustu áratugum hefur töluvert verið rætt um skólavalsstefnur, þar sem árangur á afmörkuðu sviði ræður alfarið aðgengi nemenda að bóknámsbrautum í tilteknum skólum. Skólinn hefur á síðustu áratugum orðið mikilvægur liður í félags- og menningarlegri aðgreiningu milli hópa samfara auknu aðgengi að framhaldsskóla, vaxandi samkeppni og stéttaskiptingu í samfélögum. Allir geta nú sótt framhaldsskóla en ekki hvaða framhaldsskóla sem er. Í rannsókninni er byggt á hugtökum Bourdieu um samspil veruháttar, vettvangs og auðs þegar rætt er um stéttarstöðu, sjálfsmynd og aðgreiningu og hvernig val nemen
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
22

Valdes, Patricia Segura, and Jórunn Elídóttir. "“I would invite her to play with me” Fostering respect, care and participation in a preschool: An action research project." Netla, November 30, 2020. http://dx.doi.org/10.24270/netla.2020.9.

Full text
Abstract:
Þessi grein segir frá starfendarannsókn sem var hluti af meistaraverkefni við Háskólann á Akureyri. Rannsóknin hafði það að markmiði að auka hæfni mína til að kenna ungum börnum lýðræðisleg gildi. Ég leitaðist við að finna heppilegar kennsluaðferðir og fór rannsóknin fram í einum leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknin var unnin með hópi 5–6 ára barna, níu kennurum auk rannsakandans. Kennsluaðferðir þróuðust á meðan á rannsókninni stóð m.a. með því að rýna í eigin aðferðir auk þess sem kennarar og börn mátu gæði kennslustundarinnar hverju sinni. Einnig var markvisst unnið að því að auka sjá
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
23

Mompoint-Gaillard, Pascale. "Responding to obstacles to educational change: Can online professional learning communities of educators help alleviate inertia?" Netla, December 13, 2022. http://dx.doi.org/10.24270/serritnetla.2022.85.

Full text
Abstract:
Samfélagið stendur frammi fyrir margvíslegri flækju og óvissu sem hvetur okkur til að endurskoða hugmyndir um nám, skólagöngu og tilgang menntunar. Í greininni er fjallað um skrif Jóns Torfa Jónassonar (2016) um menntabreytingar, tregðu til breytinga og hugsanlega framtíð. Hann heldur því fram að breyta þurfi markmiðum menntunar og inntaki náms. Þess vegna leitar hann svara við því hvers vegna erfitt sé að breyta inntaki náms. Þetta sé mikilvægt að skilja vegna þess að það kunni að vera skynsamlegt að innleiða „nýja þekkingu“ sem gæti átt heima utan hinna hefðbundnu námsgreina. Hann bendir á a
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
24

Ólafsson Waage, Ingimar. "Horft um öxl." Netla, December 31, 2023. http://dx.doi.org/10.24270/serritnetla.2023.23.

Full text
Abstract:
Í þessari grein, sem er persónuleg frásögn, segir frá starfendarannsókn sem höfundur framkvæmdi með það fyrir augum að öðlast betri skilning á eigin vegferð á löngum ferli í starfi sem listamaður, kennari og rannsakandi. Fræðilegur grunnur rannsóknarinnar byggist á hugmyndum Maxine Greene um siðferðislegt gildi kennarastarfsins ásamt mikilvægi þess að kennarar séu meðvitaðir um margbrotið hlutverk sitt og mæti áskorunum með skýr áform og vilja að leiðarljósi. Til þess að svo megi verða þarf einstaklingurinn að leita leiðsagnar dygðanna, einkum og sér í lagi þeirrar yfirdygðar sem Aristóteles n
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
25

Guðmarsdóttir, Sigríður. "„Mentor, hvernig skal eg þá ganga til hans … ?“. Starfsmenntun, starfsþjálfun og starfstengd leiðsögn prests- og djáknaefna." Ritröð Guðfræðistofnunar, no. 53 (2021). http://dx.doi.org/10.33112/theol.53.5.

Full text
Abstract:
Embættisskilningur vígðrar þjónustu er grundvallarþáttur í starfsþjálfun prests- og djákna-efna og gefur innsýn í inntak, samhengi og hefðir þess starfs sem neminn hefur hugsað sér að gegna í framtíðinni. Um leið og sérstaða hverrar starfsstéttar fyrir sig er óumdeild, er einnig mikilvægt að hafa í huga að allt sérfræðilegt starfsréttindanám (e. studies with professional recognition) á ýmislegt sameiginlegt, þvert á fagstéttir. Þessi tegund menntunar er tengd sið-ferðilegum gildum og siðareglum hverrar stéttar og hvort sem um er að ræða kennara, hjúkr-unarfræðinga, lækna eða sálfræðinga eru st
APA, Harvard, Vancouver, ISO, and other styles
We offer discounts on all premium plans for authors whose works are included in thematic literature selections. Contact us to get a unique promo code!